Fréttir
- Paprikur frá Vistvænni Orku fá betri dóma en þær erlenduBragðprófanir sýna að paprikur ræktaðar undir LED lýsingu þykja betri
18.03 2010
Forræktun á papriku undir LED ljósdíóðulömpum gengur mjög vel
Paprikuplönturnar dafna vel.
Fyrstu paprikuplönturnar dafna vel undir orkusparandi LED ljósdíóðulömpum sem Vistvæn Orka ehf er að prófa í tilraunagróðurhúsi LBHÍ að Reykjum í Ölfusi. Paprikuplönturnar munu vaxa í nokkrar vikur á uppeldisborðinu áður en útplöntun hefst. Á næstu vikum og mánuðum verða síðan margvíslegar mælingar framkvæmdar meðan á tilrauninni stendur.

Nú eru 8 vikur liðnar síðan lýsing með ljósdíóðulömpunum hófst og forræktun lokið. Undirbúningur fyrir útplöntun er þegar hafin. Paprikuplönturnar eru orðnar um 70cm háar og blöðin á plöntunum eru orðin stór og falleg. Sjá má að fyrstu paprikurnar hafa vaxið hratt síðustu daga.

Paprikuplönturnar eftir 7. viku. Nú er dag farið að lengja og á hádegi virðist ljósdíóðulýsingin frekar dauf, en í raun er hún það ekki eins og myndin hér fyrir ofan til hægri sýnir en hún er tekin við sólarupprás.

Nú eru 6. vikur liðnar síðan lýsing hófst með lömpunum. Búið er að setja pinna við hverja paprikuplöntu og verða þær látnar vaxa upp á tveimur sprotum.

Eftir 5. viku undir lömpunum má greinilega sjá að blóm eru farin að myndast á paprikuplöntunum sem eru orðnar stórar og stæðilegar.

Paprikuplönturnar eru núna orðnar 30cm háar eftir 4 vikna lýsingu. Nú hefur LED ljósdíóðulömpunum verið fjölgað úr 4 í 12 og þekja nú plönturnar allt uppeldisborðið.

Nú eru 3 vikur liðnar og plönturnar hafa verið aðskildar svo þær skyggi ekki hvor á aðra.

Eftir tveggja vikna lýsingu undir lömpunum eru sprotarnir nú u.þ.b. tvöfalt stærri.

Hér má sjá að sprotarnir eru komnir vel á veg eftir einnar viku lýsingu undir lömpunum.




