Fréttir
- Paprikur frá Vistvænni Orku fá betri dóma en þær erlenduBragðprófanir sýna að paprikur ræktaðar undir LED lýsingu þykja betri
14.06 2010
Paprikur frá Vistvænni Orku fá betri dóma en þær erlendu
Bragðprófanir sýna að paprikur ræktaðar undir LED lýsingu þykja betri
Á dögunum framkvæmdi Vistvæn Orka rannsókn á bragðeiginleikum papriku sem ræktaðar hafa verið undir LED lýsingu í tilraunagróðurhúsi LBHÍ að Reykjum Ölfusi. Til samanburðar voru innfluttar paprikur frá Hollandi. Kannað var hvort bragðmunur væri á þeim og ef svo væri hvor þeirra þætti betri á bragðið. Einnig var kannað hvor væri sætari og hvor þeirra hefði meira og betra eftirbragð. Skemmst er frá því að segja að paprikurnar frá Vistvænni Orku komu á flestum sviðum betur út úr þessari könnun en þær Hollensku.





