Fréttir
- Paprikur frá Vistvænni Orku fá betri dóma en þær erlenduBragðprófanir sýna að paprikur ræktaðar undir LED lýsingu þykja betri
Líftækni
Líftækni er vaxandi og fjölbreytt atvinnugrein sem fæst við hagnýtingu vísindalegrar þekkingar á sviði lífvísinda þar sem frumur eða örverur eru notaðar til að leysa vandamál eða framleiða afurðir.
Vistvæn Orka ehf hefur þróað vörulínu sem nefnd hefur verið LED-IT-GrowTM og stendur fyrir “Light Emitting Diodes and Information Technology to Grow biomass.” Með LED-IT-GrowTM er upplýsingatæknin og LED ljósdíóðutæknin tvinnuð saman sem gerir mögulegt að stýra öllum þáttum lýsingar við ræktun og framleiðslu lífmassa úr smáþörungum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.

NZγLTM
Með NZγLTM (Near Zero γ-photon Loss) tækninni er mögulegt að hámarka vaxtarhraða smáþörunga með því að staðsetja ljósdíóður og kælingu þeirra innan í ljósræktunarkerfi (photobioreactor) smáþörunga. Þannig er einnig hægt að ná hámarks ljósnýtni og mestum orkusparnaði.
Vistvæn Orka ehf hefur þróað (og sótt um einkaleyfi á) sinni eigin kælilaðferð sem byggir á því að nýta kalt vatn til að kæla ljósdíóðurnar í LED ljósdíóðulömpunum.
VO2000
VO2000 straumstýribúnaðurinn hefur þann kost
að geta stýrt miklu ljósmagni, af og
á
tíma (duty-cycle) og tíðni ljóspúlsa frá ljósdíóðum sem er mikilvægur
eiginleiki og jafnframt nauðsynlegur þáttur í því að geta hámarkað vöxt og uppskeru smáþörunga.
tíma (duty-cycle) og tíðni ljóspúlsa frá ljósdíóðum sem er mikilvægur
eiginleiki og jafnframt nauðsynlegur þáttur í því að geta hámarkað vöxt og uppskeru smáþörunga.
VO2000 straumstýribúnaðurinn er fáanlegur í dag og má nálgast tækniupplýsingar um búnaðinn hér:
Afurðir úr smáþörungum
Fjölmargar verðmætar afurðir er hægt að framleiða úr smáþörungum, sbr. skýringarmynd hér fyrir neðan:
Þar sem náttúruleg sólargeislun er með minnsta móti hér á landi verður ekki hjá því komist að horfa til ljósdíóðutækninnar og kosta hennar umfram aðra ljósgjafa þegar kemur að smáþörungarækt og framleiðslu verðmætra afurða úr þeim.




