Fréttir

  • Paprikur frá Vistvænni Orku fá betri dóma en þær erlendu
    Bragðprófanir sýna að paprikur ræktaðar undir LED lýsingu þykja betri

    meira

  • Prófanir á nýrri gerð millilýsingar hafin
    Kostir LED-ljósdíóðulampa eru ótvíræðir

    meira

  • Forræktun á papriku undir LED ljósdíóðulömpum gengur mjög vel
    Paprikuplönturnar dafna vel.

    meira

Orkulíftækni
 
 
Orkulíftækni er svið innan líftækninnar sem beinist að því að framleiða verðmæti í formi líforku (bioenergy) þ.m.t. lífeldsneyti (biofuel) og aðrar verðmætar afurðir úr lífmassa (biomass).
 
Orkulíftækni getur einnig verið umhverfislegs eðlis t.d. þegar koldíoxíð (CO2) frá virkjunum eða orkuverum er bundið með framleiðslu lífmassa eða þegar brennisteinsvetni (H2S) í jarðhitagasi er umbreytt í hreinan brennistein með ljóstillífandi bakteríum.
 
 
Orðskýringar
 
  • Líforka (Bioenergy): Hverskonar orka úr lífmassa, þ.m.t. lífeldsneyti. M.ö.o. líforka er allt eldsneyti (fast, fljótandi, loftkennt) sem unnið er úr lífmassa.
  • Lífeldsneyti (Biofuel): Fljótandi eldsneyti fyrir farartæki, unnið úr lífmassa.
  • Lífmassi (Biomass): Lifandi eða nýdauður lífrænn vefur t.d. uppskerujurtir og aðrar búafurðir, viður eða úrgangur frá skógarhöggi, þörungar og sorp.
 
 
LED-IT-GrowTM
 
Vistvæn Orka ehf hefur þróað vörulínu sem nefnd hefur verið LED-IT-GrowTM og stendur fyrir “Light Emitting Diodes and Information Technology to Grow biomass.” Með LED-IT-GrowTM er upplýsingatæknin og LED ljósdíóðutæknin tvinnuð saman sem gerir mögulegt að stýra öllum þáttum lýsingar við ræktun og framleiðslu lífmassa úr smáþörungum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
 
 
 
 
 
NZγLTM
 
Með NZγLTM (Near Zero γ-photon Loss) tækninni er mögulegt að hámarka vaxtarhraða smáþörunga með því að staðsetja ljósdíóður og kælingu þeirra innan í ljósræktunarkerfi (photobioreactor) smáþörunga. Þannig er einnig hægt að ná hámarks ljósnýtni og mestum orkusparnaði.
 
Vistvæn Orka ehf hefur þróað (og sótt um einkaleyfi á) sinni eigin kælilaðferð sem byggir á því að nýta kalt vatn til að kæla ljósdíóðurnar í LED ljósdíóðulömpunum.
 
 
VO2000
 
VO2000 straumstýribúnaðurinn hefur þann kost  að  geta stýrt miklu ljósmagni, af og á tíma (duty-cycle) og tíðni ljóspúlsa frá ljósdíóðum sem er mikilvægur eiginleiki og jafnframt nauðsynlegur þáttur í því að geta hámarkað vöxt og uppskeru smáþörunga.
 
VO2000 straumstýribúnaðurinn er fáanlegur í dag og má nálgast tækniupplýsingar um búnaðinn hér:
 
 
 
Framtíðarsýn
 
Á Hátækni- og sprotaþingi 2009 voru eftirfarandi þrjár tillögur efstar á lista yfir fjölþættar lausnir og verðmætasköpun á grunni nýsköpunar orku- og umhverfistækni:
 
  • Draga úr gaslosun jarðvarmavirkjana
  • Draga úr losun CO2 - framleiðsla eldsneytis (lífeldsneytis).
  • Þróa eldsneyti (lífeldsneyti) úr lífmassa.
 
 
Beinast liggur við að nýta afgangsvarma og koldíoxíð (CO2) í gasstreymi frá jarðhitavirkjunum til framleiðslu á lífmassa með ræktun smáþörunga  í stórum stíl hér á landi.  Lífmassa- og lífeldsneytisframleiðsla úr smáþörungum er ákjósanleg því hún  gefur mesta uppskeru (samanborið við aðrar uppskeru jurtir), keppir ekki við matvælaframleyðslu, þarfnast ekki landbúnaðarsvæða og minnkar álag á þjóðvegakerfi landsins. Á fræðaþingi landbúnaðarins 18. febrúar 2010, kom fram að nýtanlegt ræktarland á Íslandi geti einungis gefið af sér 100.000 tonn af lífdieselolíu sem er einungis 15% af olíu- og bensínnotkun hér á landi.
 
Þar sem náttúruleg sólargeislun er með minnsta móti hér á landi verður ekki hjá því komist að horfa til ljósdíóðutækninnar og kosta hennar umfram aðra ljósgjafa þegar kemur að smáþörungarækt og framleiðslu lífeldsneytis í stórum stíl.
 
 
 

Nánari upplýsingar:

Sími: 553-6752 (553-ORKA)
 

HB-LED ljósdíóður: