Fréttir

  • Paprikur frá Vistvænni Orku fá betri dóma en þær erlendu
    Bragðprófanir sýna að paprikur ræktaðar undir LED lýsingu þykja betri

    meira

  • Prófanir á nýrri gerð millilýsingar hafin
    Kostir LED-ljósdíóðulampa eru ótvíræðir

    meira

  • Forræktun á papriku undir LED ljósdíóðulömpum gengur mjög vel
    Paprikuplönturnar dafna vel.

    meira

Um okkur
 
 
Vistvæn Orka ehf er hátækni sprotafyrirtæki sem var stofnað árið 2006. Fyrirtækið stefnir að því að verða leiðandi á sínu sviði sem er þróun og markaðssetning á hagkvæmum og umhverfisvænum LED ljósdíóðulömpum og straumstýringum fyrir ylræktar-, orkulíftækni- og líftæknigeirann.
 
Innan fyrirtækisins er áralöng tækniþekking á fjölmörgum sviðum eða allt frá þróun og innleiðingu á tímaskráninga- og viðhaldskerfum fyrir flugvélar (B737, B747, og L1011), ljósleiðaragrunnnetum, ljósleiðara til heimila (FTTH), örbylgjukerfum og ljósleiðara/xDSL heildarkerfislausnum.

Á þessum grunni varð fyritækið og hugmyndin að LED-IT-GrowTM vörulínunni til, en LED-IT-GrowTM stendur fyrir “Light Emitting Diodes and Information Technology to Grow biomass.” Með því að tvinna saman upplýsingatæknina og LED ljósdíóðutæknina er mögulegt að stýra öllum þáttum lýsingar við ræktun blóma, matjurta og smáþörunga á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
 
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er: Ásbjörn Torfason.
 
Skrifstofa: Frumkvöðlasetur Keldnaholti, 112 Reykjavík, s: 553-6752, 553-(ORKA).
 
 

Nánari upplýsingar:

Sími: 553-6752 (553-ORKA)
 

HB-LED ljósdíóður: