Fréttir

  • Paprikur frá Vistvænni Orku fá betri dóma en þær erlendu
    Bragðprófanir sýna að paprikur ræktaðar undir LED lýsingu þykja betri

    meira

  • Prófanir á nýrri gerð millilýsingar hafin
    Kostir LED-ljósdíóðulampa eru ótvíræðir

    meira

  • Forræktun á papriku undir LED ljósdíóðulömpum gengur mjög vel
    Paprikuplönturnar dafna vel.

    meira

Ylrækt (blóma- og matjurtarækt)
 
 
Vistvæn Orka ehf er um þessar mundir að prófa frumgerð af hagkvæmum og endingargóðum LED (Light Emitting Diode) ljósdíóðulömpum og straumstýringum sem fyrirtækið hefur verið að þróa fyrir garðyrkjubændur sem hafa blóma- og matjurtarækt að atvinnu.
 
 
LED ljósdóðulampar
 
Þrátt fyrir að LED ljósdíóðulampar geisli ekki hita í átt að plöntum eins og hefðbundnir HPS gróðurhúsalampar gera, þá verður til hiti í ljósdíóðum sem verður að losna við svo endingartími LED ljósdíóðulampanna verði ásættanlegur. Þar sem ljósdíóður eru sífellt að verða aflmeiri (1W, 3W, 5W og jafnvel aflmeiri eru til) nægja ekki hefðbundnar álkælingar eða kæliviftur til að halda LED ljósdíóðulömpum köldum í gróðurhúsum.
 
Því hefur Vistvæn Orka ehf þróað (og sótt um einkaleyfi á) sinni eigin kæliaðferð sem felst í því að nýta kalt vatn til að kæla ljósdíóðurnar í lömpunum. Með þessari kæliaðferð vinnst tvennt:
 
  • Í fyrsta lagi endast ljósdíóðurnar í lömpunum mun lengur eða allt að 100.000 klst.
  • Í annan stað er kælikerfið lokuð hringrás með stöðugt vatnsrennsli. Rofni þessi hringrás eða ef kælivatnshiti hækkar vegna bilunar í kaldavatnsaðveitu er einfaldur skynjari sem nemur það, slekkur samstundis á lömpunum og sendir jafnframt boð í eftirlitskerfi. Þannig er auðvelt að fyrirbyggja tjón af völdum bilunar eða þjófnaðar.
 
Hægt er að koma LED ljósdíóðulömpunum fyrir í öllum stærðum af gróðurhúsum. Fyrirtækið styðst við s.k. kerfislægt flæðimodel (sjá mynd hér neðar) við hönnun á kælikerfum fyrir gróðurhús til að tryggja að LED ljósdíóðulamparnir skili hámarks aftöstum og endingartíma.
 
 
 
LED Ljósdíóðulamparnir hafa ýmsa kosti fram yfir hefðbundna gróðurhúsalampa s.s. lága orkunotkun, háan endingartíma, minna viðhald, enga eldhættu og svo er þjófavörn innbyggð í kælikerfi lampanna.
 
Mikil og góð reynsla hefur fengist af LED ljósdíóðulömpum í Hollandi og víðar þar sem raforkusparnaður hefur mælst verulegur.  En þar sem náttúruleg sólargeislun er með minnsta móti á Íslandi verður að styðjast við öflugri LED ljósdíóðulampa með betri kælingu en þeir sem notaðir eru t.d. í Hollandi. LED ljósdíóðulampar fyrirtækisins munu henta vel til ræktunar á öllum tegundum blóma- og matjurta þar sem raflýsing fyrir heilsársræktun er nauðsynleg.
 
Stefnt er að því að markaðssetning á vörum fyrir ylræktargeirann hefjist haustið 2010.
 
 
 
 
Hátæknigróðurhús
 
Með komu LED ljósdíóðulampa fyrirtækisins verður stígið stórt skref í átt að mögulegri hátæknivæðingu gróðurhúsa á Íslandi. Á Hátækni- og sprotaþingi 2009 var ein tillagan hátæknigróðurhús byggt samhliða virkjun á lista yfir fjölþættar lausnir og verðmætasköpun á grunni nýsköpunar orku- og umhverfistækni.
 
 
 

Nánari upplýsingar:

Sími: 553-6752 (553-ORKA)
 

HB-LED ljósdíóður: